Ljósheimar hlutu styrk
Fimmtudaginn 24. október hlutu Ljósheimar rausnalegan styrk frá Blue bílaleigu. Sautján aðilar, félög og góðgerðasamtök á Suðurnesjum fengu styrki eftir Góðgerðarfest Blue. Alls söfnuðust rúmar 25 milljónor króna og Ljósheimar við Háaleitisskóla fékk styrk að upphæð 1.400.000kr. Ljósheimar er nýtt, sérhæft námsúrræði sem er í þróun í skólanum. Heiða Mjöll Brynjarsdóttir tók á móti styrknum fyrir hönd Háaleitisskóla. Háaleitisskóli þakkar Blue bílaleigu kærlega fyrir þennan styrk sem mun nýtast nýju úrræði ansi vel.
Mynd: vf.is