Uppskeruhátíð Háaleitisskóla og Þykjó
Börnin að borðinu eftir hönnunarteymið Þykjó var verðlaunahafi í flokknum Verk á Hönnunarverðlaunum Íslands 2024 fyrir að vera frumlegt og áhugavert dæmi um hvernig hægt er miðla hugmyndum barna og ungmenna að alvöru og virðingu með að leiðarljósi að gefa þeim rödd og virkja til áhrifa. Verkefnið var unnið í samvinnu við nemendur í Háaleitisskóla, Kadeco og Reykjanesbæ. Þetta var hluti af virku samráði um nýtt rammaskipulag fyrir Ásbrú.
Nemendum og starfsfólki skólans mættu á sal skólans 16. desember til að taka þátt í uppskeruhátíð fyrir verkefnið Börnin að borðinu. Fulltrúar frá hönnunarteyminu Þykjó mættu og stýrðu dagskránni. Byrjað var á stuttri kynningu um verkefnið og verðlaunaafhendinguna. Að því loknu mætti starfandi bæjastjóri Haldóra Fríða Þorvaldsdóttir og tók á móti skýrslu sem unnin var upp úr verkefninu. Haldóra Fríða kom með þær gleðifréttir að fyrsta hugmyndinn úr skýrslunni væri komin af stað. Það er aparóla sem stefnt er að taka í notkun í lok janúar. Því næst komu fulltrúar skólans og nemendaráðsins tóku á móti viðurkenningaskjölum frá Hönnunarmiðstöð Íslands. Þessi skjöl verða hengd upp á áberandi stað í skólanum. Nemendur höfðu útbúið kórónur sem þau settu upp og sungu nokkur jólalög. Að því loknu fóru nemendur í bekkjarstofur sína og gæddu sér á bollakökum sem þau renndu niður með ávaxtasafa.