21. mars 2018

Árshátíð Háaleitisskóla

Árshátíð Háaleitisskóla

Kæru foreldrar/forráðamenn

Senn líður að árshátíð Háaleitisskóla en hún verður haldin fimmtudaginn 22. mars 2018.

Hefðbundin kennsla fellur niður þennan dag en nemendur mæta í sínar skólastofur kl. 09:15. Frístund verður lokuð.

Skemmtidagskrá hefst kl. 9.30 á sal skólans og verða þar frátekin sæti fyrir hvern árgang en gestir þeirra fá sæti fyrir aftan. Mikilvægt er að hver bekkur sitji hjá sínum kennara meðan skemmtanahaldið fer fram. Foreldrar/forráðamenn, eru hvattir til að mæta og taka þátt í hátíðarhöldunum með okkur og ömmur og afar eru einnig velkomin. Eftir dagskrá á sal eru börn í umsjá foreldra/forráðamanna sinna. Nemendur sitja með sínum umsjónarbekk þar til öll atriði eru búin.

Eins og þið flest þekkið hefur skapast sú hefð að hafa kaffiveitingar í skólanum fyrir árshátíðargesti að skemmtiatriðum loknum.

Í ár biðjum við foreldra barna í  (1., 2., 3., ,5., 7. og 9. bekk) að koma með meðlæti. Við viljum biðja foreldra nemenda í 1., 2., og 3. bekk að koma með eitthvað sætt (Muffins, smákökur, Súkkulaðitertur/skúffukökur, Tertur/hnallþórur, kanilsnúðar, kleinur og fleira) og foreldra nemenda í 5., 7. og 9. bekk að koma með brauðmeti (brauð/ kex og salat, flatbrauð, smurt brauð, ávexti, grænmeti og fleira)  

En foreldra barna í (4., 6. og 8. bekk) að koma með tveggja lítra gos eða safa/ djús.

Skila á veitingunum inn í íþróttahús á veitingaborð frá kl. 09:10 til 09:25 á árshátíðardaginn og minnum við fólk á að taka sín áhöld með heim og einnig að merkja þau vel svo þau komist örugglega öll til skila aftur.

Við vonumst til að eiga skemmtilegan dag og minnum nemendur á að mæta stundvíslega.

Drodzy rodzice

Dnia 22. marca  (czwartek tj.jutro) odbeda sie doroczne obchody szkoly.

Tego dnia lekcje zostaja odwolane, a uczniowie przychodza do szkoly na godzine 9:15.

Swietlica bedzie zamknieta.

Wystepy uczniów zaczna sie o godzinie 9:30. Goscie proszeni sa o zajecie miejsc z tylu.

Rodziców prosimy o przyniesienie czegos malego na poczestunek

Rodzicówuczniów klas 1., 2. i 3 czegos slodkiego jak muffinki, ciasteczka, faworki  lub inne

Rodziców uczniów klas 5., 7. i 9. nalesnki, kanapki, salatka, pokrojone warzywka lub owoce

Rodziców uczniów klas 4., 6. i 8. duzego napoju gazowanego lub soku.

Poczestunek prosimy o przyniesienie przed godzina 9.30

Með fyrirfram þökk og árshátíðarkveðju,

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, skólastjóri.

 

 

  • FFGÍR
  • Facebook
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær