23. maí 2025

Frábær árangur í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna!

Við í Háaleitisskóla erum ótrúlega stolt af nemendum okkar sem hafa náð frábærum árangri í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2025. Af rúmlega 600 hugmyndum sem bárust komust tvær hugmyndir frá okkar skóla í undanúrslit – glæsilegt!

Emma Líf í 5. SS er nú stödd í Háskóla Íslands þar sem hún tekur þátt í tveggja daga vinnustofu ásamt öðrum úrvalsnemendum víðsvegar af landinu. Þar fær hún tækifæri til að þróa áfram hugmyndina sína, Rafmaxdýr – framsækið og snjallt verkefni sem hjálpar fólki að komast að því hvort það sé tilbúið til að eignast alvöru gæludýr. Rafmaxdýrið lætur vita þegar það þarf að borða, sofa, leika eða fá klapp – og ef ekki er sinnt því, þá skilur það plastmat eftir út um allt sem vísbendingu um að ábyrgðin sé ekki klár.

Við í skólanum erum afar stolt af Emmu fyrir að sýna slíkt hugrekki og frumkvæði – að mæta ein upp í Háskólann, hitta nýtt fólk og takast á við krefjandi verkefni af öryggi og gleði.

Hugmynd Kacpers í 5. ES, Pappakassatölva, komst einnig áfram í undanúrslit – kraftmikil og skapandi lausn sem vakti mikla athygli dómnefndar. Við fögnum hans árangri með stolti!

Aðalkeppnin fer fram á Háskólatorgi laugardaginn 24. maí, og Drífa kennari, María og Jóhanna aðstoðarskólastjóri, ætlum að mæta og styðja við bakið á okkar frábæra fulltrúa.

Til hamingju með glæsilegan árangur, Emma Líf og Kacper – þið eruð sannkallaðir nýsköpunarsprotar!

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær