28. maí 2025

Stöðvar og hreyfing

Stöðvar og hreyfing

Miðvikudaginn 28. maí var uppbrot á skólastarfinu á milli 10 – 11:15. Þetta var vegna UNICEF dagsins í skólanum.  Settar voru upp stöðvar víðsvegar við og í skólanum.  Það var meðal annars boðiðupp ádansstöð, skot á mark, armbeyjur, reipi tog, froskahopp, staðbundið skokk og blöðrukeppni

Nemendur söfnuðu svo límmiðum í heimspassann sinn þegar þau höfðu lokið við verkefnið á hverri stöð.  Áður en nemendur tóku þátt í UNICEF - Hreyfingunni fengu þau fræðslu um réttindi sín og ólíkar aðstæður jafnaldra sinna í öðrum löndum. 

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær