21. maí 2025

Sumarlestur

Sumarlestur

Starfsfólk Bókasafns Reykjanesbjæjar heimsótti yngsta stig skólans í dag og kynnti fyrir þeim Sumarlesturinn í ár. Nemendur í Reykjanesbæ keppast um hvaða skóli les flestar bækur í sumar.

Í ár erum við með ævintýralegt lestrarferðalag! Linda landnámshæna býður öllum börnum sem eru byrjuð að lesa með sér í ferðalag um Terra Gallina – háspennandi ævintýraland hænanna!

Þetta er ekki bara venjulegt sumarlestrarátak! Þetta er sannkallað lestrarævintýri þar sem þú ferðast til staða eins og borgarinnar Santíeggó, siglir yfir Hænusund, rannsakar ógnvekjandi ævintýri í Hanaoi, og endar á sólríkri strönd í Hanama.

Hvað þarf að gera?

Það er einfalt! Komdu í Stapasafn, fáðu þitt eigið vegabréf og farðu í ferðalag með Lindu landnámshænu!

Í vegabréfinu er landakort og þú byrjar ferðina með Lindu efst í vinstra horni. Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og fylgjast með því hvernig þú ferðast með hænunni um landið.

Þegar þú lest, merkir þú við á kortinu. Við fjórða hvern lestur hefur þú lesið í klukkustund og lendir á stjörnu. Fyrir hverja stjörnu á vegabréfinu færðu stimpil eða límmiða í vegabréfið og jafnframt happamiða til að setja í lukkupott.

Þegar þú hefur náð að heimsækja alla áhugaverðu staðina í Hænulandi (Sem er einmitt það sem Terra Gallina þýðir!) þá getur þú með stolti sagt: “Ég hef heimsótt Terra Gallina!”

Tvisvar sinnum í mánuði verða heppnar lestrarhænur dregnar úr lukkupottinum og fá skemmtilegan vinning. Fyrir allra duglegustu lestrarhænurnar verða 6 lestraráskoranir í boði sem getur aukið líkur þeirra á að vera dregin úr pottinum, hægt er að nálgast þær í Stapasafni.

Uppskeruhátíð sumarlestursins:

Til þess að fagna skemmtilegum Sumarlestri verður uppskeruhátíð í lok sumars, nánari upplýsingar um það síðar.

  • Facebook
  • Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
  • Heimili og Skóli
  • SAFT
  • Reykjanesbær